Fyrirtækið
Fengur ehf. var stofnað á árinu 2009 af Sigurði Halldórssyni. Fyrirtækið rekur meðal annars endurvinnslu sem sett var upp í framhaldi af tilraunum sem gerðar voru á árinu 2008 um nýtingu timburs sem fellur til hér á landi.
Lögð er áhersla á að nota vistvæna orkugjafa til framleiðslunnar. Þess vegna var endurvinnslunni valin staðsetning í Hveragerði þar sem jarðgufa nýtist við framleiðsluferlið.
Í dag framleiðir endurvinnslan spón fyrir íslenskan landbúnað. Áætlað er að framleiða um 3000 tonn á ári fyrir innlendan markað. Spónnin býður upp á mikla möguleika á framleiðslu á fleiri vörum. Fengur hefur þegar hafið frekari vöruþróun.