Árangur
Fengur hefur tekið til notkunnar fullkomna spónaverksmiðju í Hveragerði þar sem spónn er framleiddur úr endurvinnanlegu timbri.
Framleiðslugeta
3 – 4 þúsund tonn á ári
Ný störf
Nú þegar hafa skapast ný störf í verksmiðju Fengs og gera má ráð fyrir að þeim fjölgi á næstu misserum.
Nýting Jarðvarma
Notaður er jarðvarmi við framleiðsluna. Þannig mætir Fengur markmiði sínu – að endurvinna hráefni til framleiðslu á vörum með vistvænum orkugjöfum.
Gjaldeyrissparnaður
Framleiðsla Fengs hefur þegar stuðlað að sparnaði á gjaldeyri fyrir íslenskt þjóðarbú þar sem innflutningur á spón hefur dregist verulega saman.
Nýting á endurvinnanlegu hráefni
Það hráefni sem Fengur nýtir til framleiðslunar var að miklu leyti urðað áður. Áætlað er að um 15 þúsund tonn af timbri falli til hér á landi á ári hverju.
Vöruþróun
Nú þegar eru tvr vörur komnar á markað sem Fengur hefur þróað. Við leggjum mikla áherslu á að halda áfram vöruþróun á vörum úr endurvinnanlegum hráefnum.
Markaðsstarf
Fengur hefur á ótrúlega stuttum tíma náð að koma vörum og þjónustu sinni á framfæri og fengið einstök viðbrögð við þeim nýjungum sem fyrirtækið hefur boðið uppá.