Um spóninn

sekkur_clear

Rakastig

Spónnin er ávallt 95% þurr þegar hann er afhentur frá okkur. Það er einstakt á íslenskum markaði, en almennt er rakastig á undirburði um 15-20%.

Rykhreinsun

Lögð hefur verið áhersla á að hreinsa spónin af ryki án þess að hann missi þurrk eiginleika sína. Ryk af stærðinni 1-2 mm er hreinsað úr og er það efni nýtt í framleiðslu á spónarkögglum. Allt það hráefni sem Fengur kaupir til framleiðslunnar er 100% nýtt og samræmist það umhverfisstefnu fyrirtækisins.

Íslensk framleiðsla

Allar afurðir okkar eru unnar úr hreinu timbri sem skilað er inn til endurvinnslu. Við framleiðsluna er notuð hrein orka, jarðgufa og rafmagn og er því allt framleiðsluferlið eins vistvænt og völ er á.

Endurnýtanlegar umbúðír

Umbúðir undir vörur okkar eru allar endurnýtanlegar. Hægt er að velja um 16 kg. balla eða 200 kg. stórsekki.

Léttir Störfin

Spónnin er einstaklega hentugur í safnstíur því létt er að raka honum til. Kornastærðin sem er frá 2mm til 9mm gerir jafnframt auðvelt að hreinsa úr honum hrossatað án þess að moka út spóninum sjálfum. Hann er léttur og myndar mjúkan "púða" fyrir hrossin.

Panta núna